Listasafnið á Akureyri: Tvær opnanir á laugardaginn

Listasafnið á Akureyri: Tvær opnanir á laugardaginn

Laugardaginn 9. febrúar kl. 15 verða fyrstu tvær sýningar ársins opnaðar í Listasafninu á Akureyri: sýning Tuma Magnússonar, Áttir, og sýning Margrétar Jónsdóttur og Kristínar Gunnlaugsdóttur, SuperBlack.

Tumi Magnússon (f. 1957) stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og AKI í Enschede, Hollandi. Í byrjun ferilsins notaði Tumi fundna hluti, ljósmyndir, teikningar og 8 mm kvikmyndir í verk sín.  Þetta leiddi hann til málverks í hlutbundnum stíl í byrjun 9. áratugarins. Á tíunda áratugnum þróaðist vinnan meira í átt að hugmyndalegu málverki og málverkainnsetningum heldur en málverki í hefðbundnum skilningi. Í lok áratugarins var vinna með tíma og rými orðin eitt aðalviðfangsefni verkanna. Tumi hélt þessum rannsóknum áfram á nýrri öld, en þá í formi innsetninga, ljósmyndaverka, og vídeó-/hljóðinnsetninga þar sem mynd og/eða hljóð er sett fram sem rýmisviðburður.

Grunntónn verkanna á SuperBlack er svartur. Hugmyndin er fengin frá nýuppgötvuðum svörtum lit, Vantablack, sem lýsir algjöru tómi. Í þessu tómi velkjast tilvistarspurningar nútímamannsins: Hvar við stöndum gagnvart náttúrunni og okkur sjálfum?

Svört leirverk Margrétar Jónsdóttur (f. 1961) minna á svarta sanda og hraunbreiður Íslands. Þau velta upp spurningunni um hvort við færum betur með náttúruna ef við sæjum hana sem mannslíkama; með líffæri eins og okkar eigin.

Í verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur (f. 1963) minnir myndmálið á tíma barokksins þar sem vestræn menning stóð andspænis uppgjöri. Í verkunum skiptast á gáski glimmersins og alvarlegur undirtónn hauskúpunnar og hnignunarinnar. Þau endurspegla háska samtímans og stöðuga þörf manneskjunnar til að taka ábyrgð á eigin líðan og lífi.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó