Listasafnið tekur þátt í Barnamenningarhátíð á Akureyri

Listasafnið tekur þátt í Barnamenningarhátíð á Akureyri

Í tilefni af Barnamenningarhátíð á Akureyri dagana 9.-14. apríl býður Listasafnið á Akureyri upp á listsmiðjur með Magnúsi Helgasyni myndlistarmanni. Listsmiðjurnar sem eru ætlaðar 6-16 ára verða haldnar fimmtudaginn 11. apríl og sunnudaginn 14. apríl kl. 15-16.30. Aðgangur er ókeypis.

Setning hátíðarinnar verður í Hamragili í Hofi kl. 16-17 þriðjudaginn 9. apríl. Grunnsveit Tónlistarskólans á Akureyri spilar, Herra Hnetusmjör flytur nokkur lög, hópur frá Dansstúdíói Alice dansar, sýnt verður atriði úr fjölskyldusöngleiknum vinsæla Gallsteinar afa Gissa og sýning á myndskreytingum í barnabókum verður opnuð formlega. Enginn aðgangseyrir og ungir sem aldnir hvattir til að mæta og gleðjast yfir menningu barna.

Markmið Barnamenningarhátíðar á Akureyri er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og veita þeim tækifæri til að njóta lista og menningar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem efla sköpunarkraftinn. Meginreglan er að aðgengi að viðburðum sé ókeypis.

Barnamenningarhátíð á Akureyri tekur mið af markmiðum Menningarstefnu Akureyrarbæjar og aðgerðaráætlun Akureyrarbæjar um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að verða fyrsta barnvæna sveitarfélagið.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar á barnamenning.is.

Sambíó

UMMÆLI