Listasumar hefst í dag

Listasumar hefst í dag

Sumarlistamaður Akureyrar, Egill Andrason, hleypir Listasumri af stokkunum á þaki inngangs Listasafnsins í dag, miðvikudaginn 7. júní klukkan 15, með kraftmiklum tónleikum við hæfi. Fyrr um daginn byrjar fyrsta námskeið hátíðarinnar, útihjólabrettanámskeið með Eika Helga og félögum, á brettasvæðinu við Háskólann. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Listasumar sendur til og með 23. júlí og hverfist fyrstu vikurnar að mestu um listasmiðjur og námskeið fyrir börn og ungmenni og ýmislegt annað spennandi eins og til að mynda uppistand og töfrandi tóna með Sögu Garðars og Snorra Helga í Minjasafninu og tónleikaröðina Mysing.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að huga að skráningu þar sem nú þegar er orðið fullt í nokkrar listasmiðjur og námskeið.

Viðburðadagatal hátíðarinnar er að finna á Listasumar.is og þar eru einnig upplýsingar um hvernig hægt er að skrá sig.

Samstarfsaðilar Listasumars eru Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Gilfélagið, RÖSK, Kaktus, Menningarhúsið Hof, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Ketilkaffi, Braggaparkið, Sumartónleikar í Akureyrarkirkju og Geimstofan.

Hægt verður að fylgjast með uppákomum á Listasumri á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar á Facebook og Instagram. Einnig er mælt með að gestir hátíðarinnar noti myllumerkið #listasumar og jafnvel merki færslur og sögur með @akureyrarbaer.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó