Listasumar hefst í dagMynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson

Listasumar hefst í dag

Listasumar á Akureyri 2022 hefst í dag, laugardaginn 11. júní, og stendur til 23. júlí. Listasumar hefst fyrr en vanalega í ár til þess að koma til móts við vaxandi áhuga á listasmiðjum fyrir börn og ungmenni. Fyrstu listasmiðjur hátíðarinnar hefjast í næstu viku og eru ennþá nokkur pláss laus.

Tónlistarmaðurinn Stebbi JAK mætir með kassagítarinn og fagnar upphafi Listasumars með tónleikum í Listasafninu á Akureyri klukkan 15 í dag. Upphaflega stóð til að Stebbi yrði utandyra en það spáir hressandi rigningu og því verða tónleikar hans færðir inn í Listasafnið.

Hægt er að kynna sér hátíðina og dagskrána á www.listasumar.is en fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og fullorðna eru í boði. Skráning er nauðsynleg í allar smiðjurnar og hægt er að sjá frekari upplýsingar á www.listasumar.is.

Alls konar gjörningar, tónleikar, sýningar og annað skemmtilegt verður á boðstólnum og má segja að ævintýrin verði til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman.

Samstarfsaðilar Listasumars eru: Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Rósenborg, Gilfélagið, Menningarhúsið Hof, Sundlaug Akureyrar, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Ungskáld, LYST kaffihús, Ketilkaffi, Garún Bistro Bar, Braggaparkið, Geimstofan.

Heimahöfn Listasumars á samfélagsmiðlum er finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram.

Sambíó

UMMÆLI