Lögreglan hvetur íbúa til að læsa útidyrahurðum – Óprúttnir aðilar á ferð um Norðurland

Lögreglan hvetur íbúa til að læsa útidyrahurðum – Óprúttnir aðilar á ferð um Norðurland

Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur íbúa á Akureyri og Norðurlandi að muna eftir að læsa útidyrahurðum á húsum sínum og íbúðum. Ástæða þess er að þeim hafa borist fréttir af óprúttnum aðilum á ferð um Norðurland. Eitthvað hefur verið um grunsamlegar mannaferðir og menn að grípa í hurðarhúna hjá fólki. Lögreglunni hefur einnig borist tilkynningar af þeim banka á hurðir og spyrja furðulegra spurninga, væntanlega í þeim tilgangi að kanna hvort einhver sé heima. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Sambíó

UMMÆLI