Prenthaus

Lögreglan leitar að manni sem varð vitni að árekstri

Lögreglan leitar að manni sem varð vitni að árekstri

Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsti í gær eftir manni sem varð var við árekstur fyrir utan Glerártorg þann 15. apríl síðastliðinn.

Áreksturinn átti sér stað á bifreiðastæðinu við innganginn að Rúmfatalagernum. Upptaka öryggismyndavélar sýnir manninn ganga rétt hjá þeim stað sem óhappið varð á.

„Maðurinn verður greinilega var við eitthvað og snýr sér að bifreiðunum. Nú óskum við eftir að ná tali af þessum manni. Vinsamlega hafðu samband í síma 444 2800 eða hér í skilaboðum,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar.

UMMÆLI

Sambíó