Lögreglan lýsir eftir 17 ára dreng

Lögreglan lýsir eftir 17 ára dreng

UPPFÆRT: Sindri Þór er fundinn

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir Sindra Þór Tryggvasyni sem er 17 ára á Facebook síðu sinni.

Þar segir um Sindra að hann sé um 180 cm á hæð, grannvaxinn og með ljóst skollitað hár. Ekki er neitt vitað um klæðaburð hans. Síðast er vitað um ferðir Sindra á Akureyri miðvikudaginn 23. október 2019.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um hvar hann er að finna hafi samband við lögregluna á Norðurlandi eystra í gegnum Neyðarlínuna 1-1-2 eða í skilaboðum á Facebook.

UMMÆLI