Lögreglan lýsir eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur

Lögreglan lýsir eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsti í kvöld eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur, 30 ára, til heimils á Akureyri.

Í tilkynningu lögreglu segir að hún sé um það bil 170 sm á hæð, í meðallagi vaxin, með dökkt axlarsítt hár og með húðflúr á aftanverðum hálsi við hægra eyra. Hún er líklega klædd í dökkan fatnað. Þá helst jogging föt, dökka dúnúlpu og með rauðbrúna prjónahúfu.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ílónu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.

UMMÆLI