Lýsa yfir óvissustigi vegna norðan hríðar

Lýsa yfir óvissustigi vegna norðan hríðar

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórana á Norðurlandi Vestra, Norðurlandi Eystra og Austurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna norðan hríðar sem spáð er að gangi yfir landið seint í dag og fram eftir föstudegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Facebook.

Þar segir að útlit sé fyrir norðan hvassviðri, 15-20 m/s og talsverða úrkomu. Hiti verður nærri frostmarki og því líklegt að úrkoma falli sem slydda ofan 300 metra yfir sjávarmáli og sem snjókoma ofan 500 metra. Veðrið gæti skapað vandræði fyrir búfénað, einkum kindur til fjalla. Líklegt er að færð spillist á fjallvegum.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó