Maður sem er talinn hafa verið á vettvangi þegar konan lést handtekinn

Maður sem er talinn hafa verið á vettvangi þegar konan lést handtekinn

Einn maður hefur verið handtekinn í kjölfar andláts ungrar konu sem fannst látin í íbúð sinni á Akureyri í gær. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá þessu á Facebook. Maðurinn var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 26. október næstkomandi.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er maðurinn talinn hafa verið á vettvangi þegar konan lést.Lögreglan á Norðurlandi eystra getur ekki gefið frekari upplýsingar um málavexti meðan fyrstu aðgerðir rannsóknarinnar standa enn yfir.

Sjá einnig: Ung kona fannst látin á Akureyri

UMMÆLI

Sambíó