Mathöll og stækkun í kortunum á Glerártorgi

Mathöll og stækkun í kortunum á Glerártorgi

Til stendur að Glerártorg á Akureyri stækki á næsta ári og að 500 fermetra mathöll verði opnuð í verslunarmiðstöðinni. Þetta kemur fram á vef Akureyri.net.

Áætlað er að mathöllin verði staðsett í norðausturhluta verslunarmiðstöðvarinnar þar sem Kaffitorg og Vodafone eru nú til húsa.

Til þess að skapa pláss fyrir mathöllina munu einhverjir þjónustuaðilar þurfa að færa sig til innan Glerártorgs á næstu mánuðum. Til að mynda mun matvöruverslun Nettó færast yfir í rými þar sem að Rúmfatalagerinn var áður. Þá eru uppi hugmyndir um 700 fm stækkun á verslunarmiðstöðinni í suðvestur.

Ítarlega umfjöllun um breytingarnar má finna á vef Akureyri.net þar sem er rætt við Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá fasteignafélaginu Eik.

UMMÆLI

Sambíó