Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

„Megum vera stolt af því hversu framarlega við Íslendingar stöndum í fiskvinnslu“Mynd: Samherji.is

„Megum vera stolt af því hversu framarlega við Íslendingar stöndum í fiskvinnslu“

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, heimsótti fiskvinnslu Útgerðarfélags Akureyringa og kynnti sér starfsemina. Þetta kemur fram á vef Samherja en Ásthildur segir í samtali við vefinn mjög áhugavert að fylgjast með allri hátækninni í íslenskum sjávarútvegi, meðal annars í fiskvinnsluhúsi ÚA.

Starfsmenn ÚA eru liðlega 200, þar af 150 til 160 í landvinnslu félagsins. Ásthildur segir að sjávarútvegur sé einn af hornsteinum atvinnulífs sveitarfélagsins og samlegðin mikil með tilliti til þjónustu fjölmargra fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu.

„Útgerðarfélag Akureyringa, sem er einn af stærstu vinnustöðum í sveitarfélaginu, er samofin sögu bæjarins og hefur mikla þýðingu fyrir okkur,“ segir Ásthildur.

Ásthildur skoðaði vinnsluna en á bilinu 70 til 100 tonn eru unnin daglega í fiskvinnsluhúsi ÚA.

„Hátæknin er mikil og sérstaklega gaman að sjá að tæknibúnaðurinn er að mestu íslenskur. Fiskvinnsluhús ÚA er afar tæknivætt og greinilegt að störf í fiskvinnslu hafa tekið miklum breytingum og krefjast sérfræðiþekkingar, sem við höfum tileinkað okkur og erum í fremstu röð. Við megum vera stolt af því hversu framarlega við Íslendingar stöndum í vinnslu sjávarafurða á heimsvísu.“

Sambíó

UMMÆLI