Menningarfélag Akureyrar auglýsir starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar

Menningarfélag Akureyrar auglýsir starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar

Menningarfélag Akureyrar auglýsir starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar. Menningarfélag Akureyrar rekur Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og Menningarhúsið Hof.

„Menningarfélag Akureyrar er þungamiðja öflugs menningarstarfs þar sem listir og mannlíf dafnar og blómstrar. Það skapar ný samfélagsleg verðmæti með vandaðri frumsköpun. Hlutverk Menningarfélagsins er að auka lífsgæði og næra samfélagið sem öflugur vettvangur upplifunar, fræðslu, listsköpunar, og viðburða sem uppfylla fjölbreyttar þarfir samfélagsins. Ástríða, áræðni og fagmennska eru grunngildi og leiðarljós Menningarfélags Akureyrar,“ segir í tilkynningu.

Þeir sem hafa áhuga á starfinu geta sent ítarlega starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið, á umsoknir@mak.is. Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2022.

Í auglýsingu Menningarfélagsins segir að helstu verkefni séu:

Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri félagsins

Yfirumsjón með rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð

Umsjón með mannauðsmálum, mannaforráðum og ráðningum

Leiðir teymisvinnu sviðsstjóra og vinnur áætlanir í samráði við þá

Yfirumsjón með öllu bókhaldi, launavinnslu, afstemmingum og uppgjörum

Eftirfylgni með stefnu félagsins

Helstu kröfur eru eftirfarandi:

Haldgóð reynsla af rekstri, stjórnun og starfsmannahaldi

Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfileikar

Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó