Prenthaus

Miðaldadagar árið 1318

Miðaldadagar árið 1318

Hvernig væri að bregða sér til miðalda? Kannski til ársins 1318? Það er hægt á Gásum rétt utan við Akureyri á Miðaldadögum 20. til 22. júlí. Gásir er einn helsti verslunarstaður á miðöldum. Árlega færist líf og fjör á verslunarstaðinn sem er endurskapaður á tilgátusvæði með tilheyrandi miðaldamannlífi. Hátíðin hefur verið haldin árlega síðan 2003. Í fyrstu voru þar 3 konur í einu tjaldi en í ár verða þar yfir 100 Gásverjar við leik og störf og búist er við um 2000 gestum.

Á Miðaldadögum gefst tækifæri til að upplifa fortíðina og verslunarstaðinn á blómatíma hans, hitta Gásverja, kynnast handverki og daglegum störfum jafnvel fá að prófa eitt og annað. Boðið er upp á leiðsagnir um fornleifasvæðið og tilgátusvæðið, sögulega stundir með Vandræðaskáldum. Það er einstök stemning í fjörunni við Gásir þar sem tilgátubúðirnar eru. Það slær hins vegar reglulega í brýnu milli bardagamanna Rimmugígs og Gásverjar bregða á með leik og söng. Gapastokkurinn verður óspart nýttur fyrir glæpamanninn og gefst gestum tækifæri til að grýta hann með eggjum. Þó ekki fúlum þó hann verði fúll. Vonandi verður hann ekki fyrir Gása-lækninum sem helst vill aflima alla, nema að seiðkonan hafi aðvarað fólk.

Auk viðburðanna verða fjölmargir handverksmenn að störfum og tónlistarfólk gæðir svæðið lífi í takt við leikþætti og taktfastan slátt eldsmiða. Steinsmiður mætir á Gásir í fyrsta sinn sem mótar kléberg að fyrirmynd jarðfundninnaa gripa. Annálaritari Gása hanterar skinn og saman búa gestir og Gásverjar til nýjan kafla í annál þessarar skemmtilegu fortíðarhátíðar.

Nánari upplýsingar á www.gasir.is

UMMÆLI

Sambíó