Miklar framkvæmdir við GlerárgötuÁ myndinni má sjá helstu breytingar og umbætur sem unnið er að á Glerárgötu og gatnamótum hennar við Þórunnarstræti og Tryggvabraut. Mynd: akureyri.is.

Miklar framkvæmdir við Glerárgötu

Miklar framkvæmdir eru nú við þungar umferðaræðar á Akureyri, bæði við Glerárgötu og Þórunnarstræti. Mikilvægt er að vegfarendur sýni nauðsyn slíkra framkvæmda skilning, séu þolinmóðir og tillitssamir.

Famkvæmdir á vegum Akureyrarbæjar og Vegagerðarinnar við gatnamót Glerárgötu og Þórunnarstrætis hófust í síðustu viku. Um er að ræða endurbætur á gatnamótunum sem hófust síðastliðið haust. Í ár verður gerður vinstribeygjuvasi á miðeyju Glerárgötu ásamt breytingum á útkeyrslunni úr verslunargötunni við húsaröðina að austan verðu og inn á gatnamótin. Einnig verða gatnamót Glerárgötu og Tryggvabrautar lagfærð og vinstribeygjuvasi Glerárgötunnar verður lengdur til suðurs. Nyrstu útkeyrslunni úr verslunargötunni við húsaröðina verður einnig breytt. Stærstu verkþættirnir í þessari framkvæmd ættu verða langt komnir undir lok mánaðarins, en áfram verður unnið að endurbótum á gatnamótunum, til dæmis við að fjölga umferðarljósastaurum. Samhliða þessum breytingum mun svo Norðurorka halda áfram með svokallaða Hjalteyrarlögn og þvera Þórunnarstrætið.

Á sama tíma er Norðurorka að endurnýja hitaveitulagnir í Þórunnarstræti og má búast við umferðartöfum, tímabundnum lokunum og skertu aðgengi að húsum við Þórunnarstræti meðan á framkvæmdum stendur. Verkið verður unnið í áföngum og eru áætluð verklok í ágúst 2019. Nánari upplýsingar á heimasíðu Norðurorku.

Um leið og íbúar eru beðnir að sýna aðgát og tillitsemi við starfsfólk framkvæmda á þessum umferðaræðum, er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þær kunna að valda.

Sambíó

UMMÆLI