N4 leitar eftir auknu hlutafé

Mynd frá vinnu við blaðið N4 Landsbyggðir. Mynd: N4.

Stjórn fjölmiðlafyrirtækisins N4 hefur gefið heimild til að leita að auknu hlutafé inn í fyrirtækið. Frá þessu er greint á Vísi.is en þar er haft eftir Jóni Steindóri Árnasyni, stjórnarformanni N4, að töluvert fé vanti inn í reksturinn svo hann geti haldið sjó.

Á dögunum þurfti að grípa til uppsagna og skipulagsbreytinga í rekstri félagsins vegna þess að hann stóð ekki undan sér á síðustu 6 mánuðum síðasta árs. Stærstu hluthafar N4 eru KEA og fjárfestingarsjóðurinn Tækifæri sem meðal annars er í meirihlutaeigu Stapa lífeyrissjóðs, KEA og Íslenskra verðbréfa.

Jón Steindór segir að það vanti töluvert upp á en fengin hafi verið heimild til þess að auka hlutaféð um 50 milljónir. „Fyrirtækið velti um 200 milljónum á síðasta ári svo þetta er nokkuð stór tala í því samhengi. Þetta endurspeglar það rekstrarumhverfi sem fjölmiðlar hafa verið í síðustu ár.“

María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri N4, segir samkeppnisstöðu N4 vera skakka þar sem semja þurfi við Vodafone og Símann um dreifingu, aðalkeppinauta N4. Einnig sé ríkið stór leikandi á markaði. „Tveggja daga rekstrarfé til RÚV myndi duga okkur á árs basis til að halda okkur gangandi. Við ættum að horfa til Norðmanna sem eru með gott kerfi fyrir fjölmiðlun í hinum dreifðu byggðum landsins, þangað ættum við að horfa,“ segir hún.

Sjá einnig:

Þremur sagt upp hjá N4

UMMÆLI