Næstu skammtar af Pfizer bóluefninu koma norður á morgun

Næstu skammtar af Pfizer bóluefninu koma norður á morgun

Bólusetningar með seinni skammtinum af Pfizer bóluefninu standa nú yfir á umdæmissvæði HSN fyrir einstaklinga í fyrsta forgangshópi. Það eru íbúar á hjúkrunar- og dvalarheimilum og heilbrigðisstarfsfólki í framlínu.

„Bólusetningar ganga vel og er ánægjulegt að sjötti skammturinn næst að jafnaði úr hverju glasi sem nýtist þá til að bólusetja fleiri einstaklinga,“ segir í tilkynningu HSN.

Gert er ráð fyrir að næstu skammtar af Pfizer bóluefninu berist á Norðurlandið fimmtudaginn 21. janúar, en þá verða þeir sem eru í dagdvöl, sambýlum og í heimahjúkrun bólusettir ásamt því heilbrigðisstarfsfólki í framlínu sem ekki var bólusett síðast. 

Hægt verður að byrja á því að bólusetja einstaklinga í elsta aldurshópnum og verður bólusett eftir því sem bóluefni berst.

„Við minnum á að ekki er hægt að panta bólusetningu með því hringja inn á heilsugæslustöð heldur munu allir einstaklingar fá boð um þiggja bólusetningu eftir forgangi og þeim uppgefinn tími og staðsetning.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó