Nettó opnar nýja og endurbætta verslun á Glerártorgi

Nettó opnar nýja og endurbætta verslun á Glerártorgi

Í dag, fimmtudaginn, 23. febrúar, opnar Nettó glæsilega, endurbætta verslun á nýjum stað á Glerártorgi (við hliðina á Kids Cool Shop). Verslunin verður opin daglega frá klukkan 9 til 20. Á fimmtudaginn milli klukkan 15 og 19, verða fjölbreyttar kynningar, lukkuhjól og glaðningur fyrir börnin. Vegleg opnunartilboð verða síðan í gangi alla helgina þar sem hægt verður að gera frábær kaup.

„Staðsetningin er mjög spennandi innan Glerártorgsins og ljóst að þjónusta og aðgengi að versluninni mun stórbatna. Þetta er fjórða græna verslun okkar sem þýðir að öll tæki eru keyrð á umhverfisvænum orkumiðli, LED lýsing er í versluninni, allt sorp er flokkað , allir frystar og megnið af kælum eru lokaðir svo eitthvað sé nefnt. Verslun okkar er rúmgóð með miklum þægindum, björt og vítt til veggja. Við leggjum mikla áherslu á ferskvöruna og það fyrsta sem mætir þér er brakandi ferskt ávaxta- og grænmetistorg. Nettó er leiðandi í heilsusamlegum- og lífrænum vörum og fá þær vörur mikið rými. Á hverjum degi verður boðið upp á nýbakað brauð, ferskvörusvæðið okkar verður stórt og vöruúrvalið í heild sinni mjög gott,“ segir Heiðar Róbert Birnuson, rekstrarstjóri Nettó.

Verslanir Nettó eru staðsettar á 20 stöðum á landinu en býður einnig upp á netverslun og heimkeyrslu á Akureyri, höfuðborgarsvæðinu, Selfoss og í Reykjanesbæ.

Nettó er í eigu Samkaupa hf. og var fyrsta lágvöruverslunin til að opna netverslun á Íslandi en alls eru verslanir Samkaupa orðnar rúmlega 60 talsins. Þá hefur verið innleitt vildarkerfi sem gildir í öllum Nettó verslunum sem ber heitið Samkaup í símann og veitir viðskiptavinum fastan afslátt af innkaupum og aðgang að sértilboðum.

Samkaup reka verslanir sínar um allt land auk netverslunar sem þjónustar viðskiptavini sömuleiðis víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó