Niceair bætir við flugi til Kaupmannahafnar

Niceair bætir við flugi til Kaupmannahafnar

Norðlenska flugfélagið Niceair mun bjóða upp á flug til Kaupmannahafnar frá Akureyri þrisvar í viku frá og með fyrsta júní næstkomandi. Til þessa hefur félagið flogið tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum en í sumar verður bætt við ferðum á þriðjudögum.

„Það hefur sýnt sig að Kaupmannahöfn er afar vinsæll áfangastaður Íslendinga og vaxandi fjöldi notar
Kastrup sem tengiflugvöll um alla Evrópu. Frá Kaupmannahöfn er flogið til meira en 200 áfangastaða
um allan heim og þetta nýtir nú þegar um þriðjungur farþega okkar. Flogið er á morgnana klukkan
07.45 sem gefur góðan tíma til að hugga sig á Kastrup áður en flugið er tekið lengra síðdegis. Hér
munar auðvitað mestu um að farþegar okkar eru nú að komast á lokasáfangastað innan eins dags, í
stað þess að leggja land undir fót á Íslandi og gista til næsta dags til að taka flugið. Gamli höfuðstaðurinn er síðan ekki síst vinsæll sem frábær helgarferðastaður” segir Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála Niceair.

UMMÆLI