Prenthaus

Norðurorka styrkir samfélagsverkefniMynd: Auðunn Níelsson

Norðurorka styrkir samfélagsverkefni

Fimmtudaginn 17. febrúar úthlutaði Norðurorka styrkjum til samfélagsverkefna og fór athöfnin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Norðurorka hf. auglýsti eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2022 í nóvember 2021. Umsóknarfresturinn rann út 19. nóvember. Styrkir eru veittir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála.

„Markmið með styrkjum Norðurorku hf. er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi,“ segir í tilkynningu frá Norðurorku.

Alls bárust 96 umsóknir. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á starfssvæði Norðurorku sem nær frá Fjallabyggð til Þingeyjarsveitar en einnig komu nokkrar umsóknir annarsstaðar frá. Að þessu sinni hlutu 39 verkefni styrk og nam heildarfjárhæð styrkja sjö milljónum króna.

Á vef Norðurorku má sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hlutu samfélagsstyrk Norðurorku að þessu sinni.

UMMÆLI