Ný dagsetning opnunarhátíðar Demantshringsins

Ný dagsetning opnunarhátíðar Demantshringsins

Formleg opnunarhátíð Demantshringsins verður sunnudaginn 6. september 2020, en áður hafði þurft að fresta viðburðinum sem átti að halda þann 22. ágúst. Dagskráin er óbreytt og hana má sjá með því að smella á hlekkinn hér neðst.

Demantshringurinn er stórkostlegur 250 kílómetra langur hringvegur á Norðurlandi, en þar er að finna magnaðar náttúruperlur og skemmtilega afþreyingu.

Markaðsstofa Norðurlands hvetur sérstaklega fólk í ferðaþjónustu til að koma á viðburðinn, sem hefst kl 13.

Vegna takmarkana á fjölda gesta samkvæmt fyrirmælum frá Almannavörnum, þá verður fólk að skrá sig á viðburðinn svo hægt sé að halda utan um fjölda gesta.

Skráning fer fram hér: https://www.northiceland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi/opnun-demantshringsins

Allir sem hafa hugsað sér að mæta verða að skrá sig.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó