Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfi Akureyrar

Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfi Akureyrar

Áætlað er að mánudaginn 6. júlí hefjist vinna við tengingu nýrrar hreinsistöðvar fráveitu við fráveitukerfið á Akureyri. Stefnt er að því að ljúka verkinu á fjórum til fimm dögum, en einungis er hægt að vinna verkið á fjöru og er um nokkra verkþætti að ræða. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að á meðan vinnunni stendur mun megninu af fráveituvatni frá Akureyri verða hleypt út um neyðarkerfi við sunnanverðan Glerárós. Einnig verður fráveituvatni hleypt út í voginn sunnan Krossaness.

Að framkvæmdum loknum mun fráveituvatnið fara um nýja útrás við hreinsistöðina sem er tæplega 400 metra löng og nær niður á 40 metra dýpi. Áætlað er að í sumar verði hreinsistöðin prófuð og síðan tekin endanlega í notkun seinni hluta ágústmánaðar.

Fólk er beðið um að sýna aðgát og stunda ekki sjóböð á viðkomandi svæðum meðan á tengiframkvæmdum stendur. Myndirnar hér að neðan sem eru fengnar af vef Akureyrarbæjar sýna þær neyðarútrásir sem verða nýttar.

Sambíó

UMMÆLI