Guðmundur Ármann opnar málverkasýningu í Bergi, menningarhúsi Dalvíkinga laugardaginn 28. maí kl. 14.00. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Yrkja II, verða um 19 málverk, máluð á árunum 2021 til 2025, sýnd ásamt nokkrum teikningum. Þessi sýning er í beinu framhaldi af sýningu sem var á Bergi árið 2022 um sama yrkisefni.
Viðfangsefnið er myndverk í anda Konkret listastefnunnar, en hún hefur birst í öllum listgreinum, svo sem konkret ljóð, tónlist og myndlist. Konkret stefnan spannar tímabilið frá 1917 til 1950/60 og sviðið er í byrjun í Evrópu. Á Íslandi kemur stefnan svo fram í myndlist- tónlist og ljóðlist á 4. og 5. tug 19. aldar.
„Myndirnar á sýningunni eru tilraunir til að raða saman formum, lit, skapa hreyfingu milli formanna og framkalla línur milli litflata sem skapa hreyfingu, samræmi og spennu. Hér er á ferðinni það sama og hjá ljóðskáldi að raða saman orðum og tónskáldi að raða saman tónum,“ segir í tilkynningunni.
Sýningin verður opin á opnunartíma Menningarhúsi Dalvíkinga Bergi, mánudaga til föstudaga kl 11 til 17, laugardaga 13 – 16 og sunnudaga er lokað.
UMMÆLI