Ný sýning á Minjasafninu: Hér stóð búð

Ný sýning á Minjasafninu: Hér stóð búð

Föstudaginn 11. febrúar kl. 13 opnar ný ljósmyndasýning á Minjasafninu á Akureyri. Hér að neðan má sjá tilkynningu frá Minjasafninu vegna sýningarinnar:

Allir eiga minningar úr búðinni. Ekki síst þeir sem muna hverfisverslanir og kjörbúðir, svo ekki sé minnst á sjoppur og hangsið sem þeim fylgdi. Í eina tíð voru slíkar verslanir nánast á hverju götuhorni, jafnvel var matvörurúta í einu hverfi Akureyrar.

Var keypt kók um helgar á þínu heimili? Jafnvel ekki fyrir hverja einustu helgi? Manstu þegar ávextir voru ekki jafn sjálfsagðir og nú. Manstu þegar sælgæti var keypt á tyllidögum og var minna í sniðum, áður en lítið varð stórt og stórt stærra? Þegar kaupmaðurinn á horninu var ígildi kreditkorts, því hjá flestum var hægt að skrifa þær vörur sem teknar voru út. Það var í sjálfu sér söguleg arfleif frá tíma einokunarverslunarinnar.

Á sýningunni Hér stóð búð gefur að líta ljósmyndir frá ýmsum tímum sem tengjast  matvörubúðum á Akureyri. Sýningin lýsir í senn þróun hverfisverslana í stórmarkaði en fangar ekki síður tíðarandann, þegar hjartslátt hverfisins mátti finna í kjörbúðinni.

Sýningin er unnin úr ljósmyndasafni Minjasafnsins, sem telur yfir þrjár milljónir mynda. Þó ljósmyndasafnið sé stórt er þar ekki allt að finna sem verðmæti væri í að varðveita. Því væri fengur  fyrir safnið að vita hvort úti í samfélaginu leynist ekki myndir sem tengjast þessum skemmtilega þætti menningarinnar sem hverfisverslanir voru.

Annar megin þáttur sýningarinnar eru sögurnar sem leynast þarna úti, minningarnar sem tengjast búðunum, ferðinni í búðina með minnismiðann eða innkaupanetið, afganginn sem mátti kaupa nammi fyrir, kannski í fyrsta sinn. Fannstu  ástina í kjörbúðinni eða sjoppunni? Við viljum líka fá að heyra sögur þeirra sem unnu í búðunum, stóðu fyrir aftan búðarborðið, fylltu á hillurnar, sendust með vörurnar.

Segðu okkur þína sögu. Starfsfólk safnsins verður til staðar á sýningunni en einnig verður opnuð facebook síðan Hér stóð búð … á Akureyri þar sem hægt verður að deila minningum og myndum. Hver veit nema þín mynd rati á sýninguna? Einnig er hægt að senda okkur sögur og myndir á netfangið minjasafnid@minjasfnid.is

Á sýningunni verður einnig hægt að fara í búðarleik í Litlu-Kjörbúðinni, bregða sér á bakvið búðarborðið eða kaupa inn fyrir helgina. Athugið ekki verður selt út um lúguna.

Sýningin markar upphaf afmælisárs Minjasafnsins á Akureyri sem fagnar 60 ára afmæli á árinu með sýningum bæði innan veggja safnsins og utan, viðburðum, ljóðahátíð, tónleikum og menningarsmiðjum fyrir börn og ungmenni. Fylgist með frá byrjun.

Í tilefni afmælisársins er býður safnið upp á Afmæliskort safnsins sem gildir allt árið og veitir aðgang að fimm söfnum Minjasafninu á Akureyri, Nonnahúsi, Leikfangahúsinu, Davíðshúsi og Laufási. Verðið er vandræðilega lágt eða kr. 2000 fyrir eldri en 18 ára, 1000 kr fyrir heldri borgara en ókeypis er fyrir öryrkja.

UMMÆLI

Sambíó