Nýjar námsleiðir á meistarastigi í hjúkrunarfræði í HAMynd/HA

Nýjar námsleiðir á meistarastigi í hjúkrunarfræði í HA

Í haust verður boðið upp á tvær nýjar námsleiðir á meistarastigi við hjúkrunarfræðideild skólans. Leiðirnar sem um ræðir eru hjúkrun einstaklinga með hjartasjúkdóma og hjúkrun einstaklinga með sykursýki og hefur slíkt sérhæft meistaranám fyrir hjúkrunarfræðinga ekki verið áður á Íslandi.

„Vaxandi þörf er fyrir sérhæfða hjúkrunarfræðinga í hjúkrun hjartasjúklinga og einstaklinga með sykursýki vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar og hækkandi algengi þessara sjúkdóma. Hjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til að efla sjálfsumönnun fólks og rannsóknir benda til þess að sérhæfing innan hjúkrunar geti bætt útkomu sjúklinga, aukið öryggi þeirra og dregið úr endurinnlögnum,“ segir á vef HA.

Klínísk þjálfun verður meiri og sérhæfðari

Markmið námsins er að stúdentar öðlist sérfræðiþekkingu í annaðhvort hjúkrun sjúklinga með hjartasjúkdóma eða sykursýki. Áhersla er lögð á sjálfstæði hjúkrunarfræðinga, að efla og dýpka þekkingu, auka klíníska færni ásamt því að styrkja fagmennsku og rannsóknarfærni. Þá er horft til þess að efla hæfni í að leiða meðferð í nýjum þjónustuformum og þverfaglegum teymum sem og notkun fjarheilbrigðisþjónustu.

Um er að ræða lotubundið sveigjanlegt nám sem veitir hjúkrunarfræðingum á öllu landinu tækifæri til að sækja það og getur þannig stuðlað að fjölgun sérfræðinga í hjúkrun um allt land. Áhersla verður á herminám og klínísk þjálfun verður meiri og sérhæfðari en áður hefur staðið til boða í meistaranámi fyrir hjúkrunarfræðinga sem starfa á þessum sérsviðum.

Samstarf í uppbyggingu námsleiðanna

Sérfræðingar frá HA, Háskóla Íslands, Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri hafa unnið að undirbúningi námsins í nokkurn tíma. Mikill metnaður er lagður í uppbyggingu námslínanna, sem byggja á hæfniviðmiðum Evrópska hjartahjúkrunarfélagsins og viðmiðum um menntun heilbrigðisstétta frá Alþjóðasykursýkissambandinu.

Námið er 120 ECTS einingar og lýkur því með 30 eininga meistaraverkefni. Inntökuskilyrði felast í viðurkenndu hjúkrunarnámi sem er lokið með meðaleinkunn 7 eða hærra. Pláss er fyrir 8 stúdenta á hvorri línu fyrir sig og ganga þeir umsækjendur fyrir sem hafa nú þegar lokið viðbótardiplóma- eða meistaraprófi og/eða hafa tveggja ára starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingar. Tekið er inn í námið annað hvert ár.

Árún K. Sigurðardóttir og Margrét Hrönn Svavarsdóttir prófessorar við hjúkrunarfræðideild, munu leiða þessa nýju námslínu. Báðar eru þær doktorsmenntaðir hjúkrunarfræðingar, Árún á sviði sykursýki og Margrét Hrönn innan hjartahjúkrunar og sjúklingafræðslu.

Hér er hægt að sjá frekari upplýsingar um námið, inntökuskilyrði og umsóknarferli. Einnig verður haldinn kynningarfundur á stað og í streymi, á námsleiðunum þann 17. mars, klukkan 14:00 þar sem öll áhugasöm eru velkomin. Frekari upplýsingar um kynningarfundinn má finna hér

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó