Guðný Hallsdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin í starf deildarstjóra hjúkrunar- og dvalardeildar hjá HSN á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HSN.
Guðný útskrifaðist sem sjúkraliði frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 2007, hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri 2012 og sem markþjálfi 2023.
Guðný hefur víðtæka reynslu á sviði umönnunar og hjúkrunar og hefur meðal annars unnið á Dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði, HSN Blönduósi, HSN Sauðárkróki og á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri.
UMMÆLI