Nýr safnstjóri Flugsafns Íslands

Nýr safnstjóri Flugsafns Íslands

Í dag tók Steinunn María Sveinsdóttir sagnfræðingur til starfa sem safnstjóri Flugsafns Íslands. Steinunn tekur við af Gesti Einari Jónassyni sem hefur gegnt starfi safnstjóra síðastliðin 10 ár.

Steinunn er með BA gráðu í sagnfræði og safnafræði frá Aarhus Universitet auk þess sem hún hefur lagt stund á meistaranám í safnafræði við Háskóla Íslands. Undanfarin fimm ár hefur hún starfað sem fagstjóri Síldarminjasafns Íslands.

„Um leið og stjórn Flugsafnsins býður Steinunni velkomna til starfa er fráfarandi safnstjóra færðar innilegar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu safnsins,“ segir í tilkynningu Flugsafnsins.

UMMÆLI

Sambíó