Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Nýr stígur meðfram Kjarnavegi í sumar

Nýr stígur meðfram Kjarnavegi í sumar

Hafist verður handa við að leggja nýjan stíg meðfram Kjarnavegi í sumar. Stígurinn verður um 600 metra langur og mun liggja vestan við Kjarnagötu, frá Wilhelmínugötu suður að afleggjaranum við Hamra. Þetta kemur fram í umfjöllun Vikublaðsins um málið.

Í Vikublaðinu segir að áætlaður kostnaður við stígagerðina sé um 30 milljónir króna og að ýmis hliðarverk verði unnin samhliða stígagerðinni. Jónas Valdimarsson, verkefnastjóri hönnunar hjá Umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar segir að um þessar myndir sé verið að ljúka hönnun og endanlegri kostnaðaráætlun.

„Útgangspunkturinn með þessu verkefni er bætt umferðaröryggi. Þetta er fjölfarin leið, bæði barna og fullorðinna, gangandi og hjólandi og sérstakur stígur fyrir þá umferð eykur öryggið til muna,“ segir Jónas í samtali við Vikublaðið þar sem er fjallað nánar um málið.

Mynd: Vikublaðið
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó