Nýtt kaffihús í Listasafninu

Nýtt kaffihús í Listasafninu

Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri í gær var nýtt kaffihús kynnt. Í lok fundarins undirrituðu Hlynur Hallsson, safnstjóri, og Auðar B. Ólafsdóttir samning um rekstur kaffihúss í Listasafninu. Þetta kemur fram á vef Listasafnsins.

Kaffihúsið sem mun bera heitið Kaffi og list hefur starfsemi 1. mars næstkomandi. „Ég er mjög spennt og full tilhlökkunar yfir að hefja starfsemi í þessu glæsilega húsi og fá að taka þátt í lifandi starfsemi safnsins og Listagilsins“, sagði Auður við undirritun. „Kaffi og list mun bjóða upp á gott úrval kaffidrykkja úr fyrsta flokks kaffibaunum frá Te og kaffi ásamt öðrum fjölbreyttum veitingum. Hér eru miklir möguleikar á líflegri starfsemi kaffihúss og ekki síst á sumrin þegar hægt verður að taka útisvæðið til notkunar og jafnvel útisvalir Listasafnsins þegar aðstæður leyfa.“

Á kynningarfundinum var komandi starfsár og sýningaskrá ársins 2020 einnig kynnt. Þá var farið yfir starfsemi safnsins í heild sinni sem og áframhaldandi samstarf við Icelandair Hotel Akureyri.

UMMÆLI