Nýtt lag frá KÁ-AKÁ

Nýtt lag frá KÁ-AKÁ

Halldór Kristinn, athafnamaður og tónlistarmaður, hefur gefið út nýtt lag undir listamannanafni sínu KÁ-AKÁ. Lagið heitir „Alla leið.“ og var frumflutt á útvarpsstöðinni X-inu, síðasta fimmtudag og síðar á FM957. Ár er síðan að Halldór gaf síðast út lag, nánast upp á dag, en þann 2. maí 2024 kom út lagið „Réttu megin við ánna“ sem Kaffið fjallaði um.

„Ég var að gefa út nýtt lag, algjör testasprengja sem varð til þegar ég kíkti suður í til Benjamín Bent Árnason – Fannar Már Oddsson og Leifur Örn Kaldal sem smíðuðu þetta með mér, algjörir fagmenn og harðhausar eins og heyrist á þessu lagi,“ segir Halldór á Facebook-síðu sinni.

Hlustið á lagið hér fyrir neðan.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó