Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Öflugur kantsmassari til liðs við KA

Öflugur kantsmassari til liðs við KA

Mireia Orozco skrifaði í gær undir samning við blakdeild KA. Mireia er 27 ára og kemur frá Spáni. Í tilkynningu á vef KA segir að hún sé gríðarlega öflugur kantsmassari sem komi til með að styrkja öflugt blaklið KA enn frekar.

Mireia gengur til liðs við KA frá Club Voleibol Sant Cugat sem leikur í spænsku ofurdeildinni. Mireia hefur verið mjög áberandi á Spáni undanfarin ár og þar sem hún hefur verið ein af bestu kantsmössurunum. Hún lék með CVB Barcelona frá 2014 til 2018 og í kjölfarið lék hún með Sant Cugat. Árin 2018 og 2019 var hún valin í stjörnuleikinn í ofurdeildinni auk þess sem hún lék í Meistaradeild Evrópu með Barcelona árin 2017 og 2018.

„Við bjóðum Mireiu hjartanlega velkomna norður og verður svo sannarlega spennandi að sjá hana með liðinu strax á sunnudaginn er Álftanes mætir norður og verður leikurinn í beinni á KA-TV. Leikurinn hefst kl. 15:00,“ segir á vef KA.

Mynd: Ka.is – Mireia ásamt þeim Miguel Mateo Castrillo þjálfara kvennaliðs KA og Arnari Má Sigurðssyni formanni blakdeildar KA.

UMMÆLI

Sambíó