Opið fyrir umsóknir í Gestavinnustofu Gilfélagsins

Gilfélagið auglýsir eftir umsóknum til dvalar í gestavinnustofu Gilfélagsins. Um er að ræða mánaðardvalir á tímabilinu júlí til desember 2018. Gestavinnustofan er fullbúin íbúð með vinnustofu sem hentar einum listamanni eða pari. Innangengt er í viðburðarrýmið okkar Deigluna þar sem er í boði að halda sýningu eða annarskonar viðburð í lok dvalar eða eftir samkomulagi.

Íbúðin er staðsett í Kaupvangsstræti, eða Listagilinu í miðbæ Akureyrar þar sem er stutt að sækja alla helstu þjónustu svo ekki sé minnst á menningarlífið.

Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember. Nánari upplýsingar má finna á listagil.is.

 

UMMÆLI

Sambíó