Opið hús í MA í dagMynd/MA

Opið hús í MA í dag

Í dag verður opið hús í MA milli klukkan 16:30 – 17:30. Skólinn býður í heimsókn til að skoða skólann, kynna námið og þjónustuna, félagslífið og það sem snertir skólastarfið. Sérstaklega eru 10. bekkingar og forráðafólk þeirra hvatt til að mæta í dag, segir í tilkynningunni frá MA.

Dagskráin hefst með nokkrum vel völdum orðum frá skólameistara. Stutt námskynning í höndum brautarstjóra fylgir í kjölfarið auk þess sem nemendur í 1. bekk munu deila reynslu sinni af skólavist í MA. Fleira verður í boði svo sem tónlistaratriði, kynningarmyndband og ratleikur. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó