Slippurinn Akureyri og Optimar hafa styrkt tengsl sín á milli með stefnumarkandi samstarfi sem á að auka samkeppnishæfni og efla stöðu fyrirtækjanna á bæði innlendum og erlendum mörkuðum. Í tilkynningu á vef Slippsins segir að samvinnan muni skapa ný tækifæri fyrir bæði fyrirtækin og viðskiptavini þeirra.
„Með þessu samstarfi munu Slippurinn Akureyri og Optimar vinna náið saman að þjónustu og endurnýjun skipa. Jafnframt munu þau nýta sér sérþekkingu hvors annars til að bjóða fjölbreyttari vörur og lausnir sérsniðnar að fisk- og matvælaiðnaði,“ segir í tilkynningu Slippsins.
„Með sameiginlegu átaki styrkjum við þjónustunet okkar og fáum beinan aðgang að háþróaðri sérfræðiþekkingu,“ segja Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri, og Siggi Ólason, framkvæmdastjóri Optimar.
„Við aukum samstarf okkar um þjónustu og vöruframboð á skilvirkan hátt og tryggjum þannig að viðskiptavinir okkar fái bestu mögulegu þjónustu,“ segir Siggi Ólason.
„Við hjá Slippnum Akureyri tökum undir þessa framtíðarsýn og hlökkum til að sjá árangurinn af því að sameina sérþekkingu og reynslu til að byggja upp enn öflugra og samkeppnishæfara fyrirtæki. Optimar er viðurkenndur frumkvöðull í sjávarútvegi, og við erum spennt að vinna enn nánar saman að lausnum fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Páll Kristjánsson.
UMMÆLI