Öryggisprófun á nýju lyftunni

Öryggisprófun á nýju lyftunni

Sjálfboðaliðar SKA stóðu vaktina síðustu helgi og prófuðu öryggisbúnað nýju stólalyftunnar í Hlíðarfjalli. Þar hlóðu þau nýju lyftuna af salt- og sandpokum til að prófa bremsubúnaðinn.

Sérfræðingar frá útlöndum stjórnuðu eftirlitinu úr stjórnunarrými lyftunnar og sjálfboðaliðarnir fermdu og affermdu lyftunna.  Fimmtíu stólar voru hlaðnir af 350kg hver sem líkir eftir því að lyftan sé fullsetin, 4 manneskjur í hverjum stól á leiðinni upp. 700 kg voru þannig færð til og frá 50 sinnum.

Þarna komu saman í verki Vinir Hlíðarfjalls, starfsmenn Hlíðarfjalls og aðstandendur í SKA.

UMMÆLI