Óskað eftir ábendingum um fallega garðaMynd: Kaffid.is/Jónatan.

Óskað eftir ábendingum um fallega garða

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokka:

  • Flokkur nýrri garða
  • Flokkur eldri garða
  • Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa
  • Flokkur fyrirtækja
  • Flokkur stofnana
  • Fyrirmyndargata bæjarins

Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals, aðlaðandi götumyndar o.fl. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði en fyrr eru nefnd og veitt viðurkenningar samkvæmt því.

Dómnefnd ákveður hversu margar viðurkenningar eru veittar í hverjum flokki. Heimilt er að fella niður úthlutun viðurkenningar í einstökum flokkum ef sýnt þykir að enginn standist ofangreindar viðmiðanir

Tekið er á móti ábendingum í netfangi vilborgs@akureyri.is og jbg@akureyri.is til og með fimmtudeginum 8. ágúst 2019 og í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar í síma 460 1000.

Einnig mun verða veitt viðurkenning fyrir gróskumikinn og vel hirtan matjurtagarð sem starfsfólk Ræktunarstöðvarinnar mun velja.

Viðurkenningar verða veittar á Akureyrarvöku 30 ágúst 2019.

UMMÆLI