Ákveðið hefur verið að aflétta óvissustigi á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigurði E. Sigurðssyni, framkvæmdastjóra lækninga á Sjúkrahúsinu.
Ennþá eru legudeildir þéttsetnar og ekki er fullmannað í allar stöður en unnið er að því að leysa úr því. Í tilkynningunni segir að hafi þegar lagt á sig umtalsverða aukavinnu svo tryggja megi þjónustu við skjólstæðinga SAk.
Sneiðmyndatæki er komið í lag þannig að ekki verða truflanir á eða tafir á greiningu í tilfellum þar sem notkun þess skiptir höfuðmáli.
UMMÆLI