Patrekur Stefánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2026-2027.
Patrekur er 29 ára gamall leikstjórnandi, sem getur einnig leikið sem skytta, og uppalinn hjá KA og hefur leikið 127 leiki fyrir félagið í deild, bikar og evrópu en auk þess lék hann 30 leiki með sameiginlegu liði Akureyrar Handboltafélags á árunum 2013-2017.
„Það er skýr stefna hjá félaginu að byggja á okkar gildum og byggja liðið upp á KA mönnum. Það er lykilskref í þeirri vinnu að halda Patta innan okkar raða og afar gott fyrir yngri leikmenn liðsins að geta sótt í þá miklu reynslu sem Patti býr yfir,“ segir á vef KA
UMMÆLI