Pítsustaður­inn Black­box á leið til Akureyrar

Pítsustaður­inn Black­box á leið til Akureyrar

Pítsustaður­inn Black­box mun á næstunni opna nýjan stað inni á Ham­borg­arafa­brikk­unni á Ak­ur­eyri og gefa gest­um þar með val um tvær gerðir af mat á sama staðnum.

Blackbox Pizzeria á Hamborgarafabrikkunni á Akureyri er hluti af nýrri stefnu Blackbox en auk opnunar á staðnum mun fyrirtækið opna svokallaða Blackbox Express staði víða á landinu.

„Eft­ir breyt­ing­una verðum við með Black­box Pizzer­ia, sem eru veit­ingastaðir með full­um mat­seðli og svo Black­box Express þar sem mat­seðill­inn er minni, en gæðin og af­greiðslu­hraðinn sá sami. Pizzer­ia-staðirn­ir verða í Borg­ar­túni og á Ak­ur­eyri, en Express-staðirn­ir í Staðarskála í Hrútaf­irði, Aust­ur­vegi á Sel­fossi, Lækj­ar­götu í Hafnar­f­irði og Há­holti í Mos­fells­bæ,“ seg­ir Karl Viggó Vig­fús­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Black­box, í sam­tali við ViðskiptaMogg­ann.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó