Risasamningar í höfn hjá Þór/KA

Risasamningar í höfn hjá Þór/KA

Penninn var á lofti í Þórsheimilinu í gær en þær Sandra María Jessen, Andrea Mist Pálsdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir sömdu allar við knattspyrnulið Þór/KA. Sandra og Andrea snúa aftur til Þór/KA eftir ævintýri erlendis og Hulda framlengir samning sinn.

Á vef thorka.is segir að leikmannahópur liðsins sé nú óðum farinn að taka á sig mynd og að öflugir leikmenn séu að bætast í ýmsar stöður. Áður hafði liðið samið við Brooke Lampe, bandarískan miðvörð og Unni Stefánsdóttur, miðjumann sem kemur frá Grindavík. Þá hafa Saga Líf Sigurðardóttir og Agnes Birta Stefánsdóttir endurnýjað samninga sína við liðið. Arna Sif Ásgrímsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Colleen Kennedy og Shaina Ashouri hafa yfirgefið liðið frá því í sumar.

„Það eru því engar ýkjur að spennan fari vaxandi innan okkar raða. Þór/KA hefur um árabil verið í fremstu röð hér á landi og þar viljum við vera. Félagið vann tvo Íslandsmeistaratitla á öðrum áratug aldarinnar og engin ástæða til að láta þar staðar numið. Markmiðin eru stór og metnaðarfull og hljóðið í þjálfurunum er gott,“ segir á vef Þór/KA

Jón Stefán Jónsson, annar þjálfara meistaraflokks Þórs/KA segir það frábært fyrir kvennafótboltann á Akureyri að fá þær Söndru og Andreu aftur heim, reynslunni ríkari úr atvinnumennsku. „Það þarf varla að nefna hversu gríðarlegur liðsstyrkur þetta er fyrir okkar unga hóp. Það er ekki síður ánægjulegt að halda Huldu Ósk hjá félaginu enda er hún feykilega mikilvægur leikmaður. Ég vona að þetta sýni Akureyringum öllum að okkur hjá Þór/KA er fullkomlega alvara með að koma liðinu aftur í röð fremstu liða landsins,“ segir Jón Stefán.

Perry Mclachlan tekur í sama streng. „Það eru gríðarlega stór tíðindi fyrir klúbbinn að fá þessa leikmenn, Söndru Maríu og Andreu Mist, heim og að Hulda Ósk hafi framlengt veru sína hjá okkur. Þær munu hafa mikil áhrif og breyta miklu fyrir hópinn. Það er frábært að bæta reynslu þeirra við inn í hóp þeirra efnilegu ungu leikmanna sem við höfum. Þetta er fyrsta skrefið til baka í rétta átt fyrir okkur sem félag og við erum mjög spennt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Perry.

Á vef Þór/KA má lesa nánar um samningana.

UMMÆLI