Síðastliðinn laugardag hélt Hljómsveit Akureyrar tónleika í Glerárkirkju þar sem gestum bauðst að leggja frjáls framlög til Grófarinnar. Á Facebook-síðu Grófin Geðrækt segir:
„Á viðburðinum söfnuðust rúmlega 500.000 krónur sem koma sér einstaklega vel í nýju húsnæði og til endurnýja hluti sem varð að henda sökum myglu í gamla húsnæðinu. Við erum mjög þakklát og meir yfir stuðningum sem við njótum í samfélaginu og þökkum kærlega fyrir þetta framtak. Þessi viðburður sannaði svo sannarlega að margt smátt gerir eitt stórt!“
UMMÆLI