KIA

Rúta útaf veg­in­um á Öxna­dals­heiði – myndband

Ármann Hinrik Kolbeinsson var á staðnum

Rúta með 17 farþegum fór útaf veg­in­um á Öxna­dals­heiði í gærkvöldi. Björg­un­ar­sveit­in Súlur var kölluð út um klukk­an hálf ell­efu til að ferja farþeg­ana úr rút­unni yfir í aðra en vonskuveður var á heiðinni.

Ármann Hinrik Kolbeinsson var staddur í rútunni sem fór útaf og tók meðfylgjandi myndband. Hann segir í samtali við Kaffið að lítil hætta hafi verið á ferðum og fólk hið rólegasta.

„Við fórum bara útaf og sátum í snjóskafli og því var ekki hægt að opna dyrnar. Við sátum því bara róleg og biðum“, segir Ármann.

Sambíó

UMMÆLI