Sækja um leyfi fyrir mathöll á AkureyriMynd: Vikublaðið

Sækja um leyfi fyrir mathöll á Akureyri

Vilhelm Patrick Bernhöft eigandi jarðhæðar hússins númer 28 við Glerárgötu hefur sótt um leyfi til skipulagssviðs Akureyrarbæjar fyrir mathöll í húsinu. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins í dag.

„Þetta er á frumstigi og alveg óvíst hvað af verður,“ segir Vilhelm í samtali við Vikublaðið. Ásprent var með rekstur í húsnæðinu um árabil en félagið varð gjaldþrota á fyrri hluta síðasta árs. Prentmet Oddi leigir nú um það bil einn þriðja af jarðhæðinni undir sína starfsemi.

 „Það eru enn eftir um 1000 fermetrar ónotaðir og við höfum eðlilega áhuga fyrir að leiga þá út. Við erum með alla anga út að koma húsinu í notkun, en á þessu stigi vitum við ekki hvað verður. Fyrst er að bíða eftir svari frá Akureyrarbæ hvort til þess fáist leyfi,“ segir Vilhelm en ítarlegri umfjöllun má finna hér.

UMMÆLI

Sambíó