„Saga Iðnaðarsafnsins á Akureyri í núverandi mynd er á enda“

„Saga Iðnaðarsafnsins á Akureyri í núverandi mynd er á enda“

Rekstur Iðnaðarsafnsins á Akureyri eins og hann hefur verið á undanförnum tæpum 25 árum, er komin að endamörkum. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Iðnaðarsafnsins.

„Vilji og ákvörðun bæjarstjórnar Akureyrar er að unnið verði að sameiningu við Minjasafnið á Akureyri og ennfremur verði hætt að safna áfram munum úr sögu Akureyrar, umfram einhver óskilgreynd ár á síðustu öld,“ segir í tilkynningunni.

„Einkum verði horft til áranna þegar iðnaður var í mestum blóma hér og þá einhverra sérstakra fyrirtækja en ekki verði haldið áfram að varðveita og safna í heild sinni iðnaðarsögu Akureyrar á nýrri öld. Nokkuð ljóst er að Iðnaðarsafnið verður ekki opið á ársgrundvelli eins og verið hefur og muni þá væntanlega verða horft einkum til sumaropnunar og eða einstakra sýninga. Á þessu stigi er einnig alveg óljóst hvort og þá með hvaða hætti safnið verði opið eftir 1. mars n.k.“

Starfsmenn og hollvinir safnsins munu ekki tjá sig að sinni um ákvörðun bæjarstjórnar en munu síðar gefa út sameiginlega yfirlýsingu.

UMMÆLI

Sambíó