KIA

Sameining í hvalaskoðun á Akureyri

Hvalaskoðunarfyrirtækin á Akureyri Hvalaskoðun ehf. og Ambassador hafa ákveðið að sameinast. Hvalaskoðun ehf. er í eigu Eldingar. Rannveig Grétarsdóttir framkvæmdastýra Eldingar segir að það sé búið að ganga frá öllu og fyrirtækin verði formlega sameinuð í dag.

Fjallað var um málið í Morgunblaðinu í dag en þar segir Rannveig að hún telji ekki að áhugi á hvalaskoðun á Akureyri sé að fara dvínandi en að það sé einfaldlega ekki pláss fyrir tvö stór hvalaskoðunarfyrirtæki í bænum.

Hún segir ástæðuna fyrir samruna fyrirtækjanna vera hagræðingu. „Þessi rekst­ur er frem­ur árstíðabund­inn og það er ein­fald­lega ekki nóg um ferðamenn á Ak­ur­eyri á vet­urna til að halda rekstri beggja fyr­ir­tækja áfram.“

 

Sambíó

UMMÆLI