Samherji kærir stjórnendur Seðlabankans til lögregluKristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson, eigendur Samherja. Mynd: vb.is.

Samherji kærir stjórnendur Seðlabankans til lögreglu

Stjórn Samherja og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri fyrirtækisins, hafa kært stjórnendur Seðlabankans til lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þorsteini Má á heimasíðu Samherja. Þar segir hann stjórnendur Samherja hafa farið fram á viðræður um að ljúka málinu, sem snýst um margra ára rannsókn Seðlabankans á meintum brotum fyrirtækisins á lögum um gjaldeyrismál og stjórnvaldssekt á Samherja, en Seðlabankinn hafnaði formlega beiðni um sáttafund.

Saknæmt og ólögmætt framferði helstu stjórnenda Seðlabankans

„Aðgerðir Seðlabanka Íslands gegn Samherja eru fordæmalausar. Bankinn fór í húsleit án þess að hafa rökstuddan grun um brot, upplýsti fjölmiðlamenn um fyrirhugaða húsleit og sendi út fréttatilkynningu um víða veröld þar að lútandi þegar húsleitin var rétt byrjuð. Ekki nóg með að húsleitin byggðist á órökstuddum grun og kolröngum útreikningum sem dómstólar staðfestu seinna að hefðu verið rangir, heldur var seðlabankastjóra á þessum tíma kunnugt um veikan grundvöll gjaldeyrisreglna enda örfáum mánuðum áður búinn að ræða það sérstaklega á blaðamannafundi. Allt kom fyrir ekki, reitt var hátt til höggs og vorið 2013 kærði bankinn Samherja og tengd fyrirtæki fyrir ætluð brot upp á tugi milljarða,“ segir Þorsteinn Már og bætir jafnframt við niðurstaða málsins hafi verið sú að Samherji skilaði meiri gjaldeyri til landsins en skylt var. Ásakanir um fiskverð byggðust á röngum útreikningum og vitlausri aðferðafræði. Þorsteinn segir framferði helstu stjórnenda bankans hafa verið með saknæmum og ólögmætum hætti gegn Samherja og honum persónulega.

Afsökunarbeiðnum og bótum hafnað af Seðlabankanum

Hann bætir við að aðgerðir bankans séu tilhæfulausar og nú hafi þær staðið í rúmlega sjö ár. Stjórnendur Samherja fóru fram á afsökunarbeiðni frá bankanum og bætur upp í útlagðan kostnað sem Seðlabankinn hefur hafnað. Bankinn neitaði einnig að endurgreiða sekt sem lögð var á Þorstein Má persónulega.

„Fyrir utan það sem að framan er rakið, hefur komið betur og betur í ljós, í málflutningi seðlabankans, samskiptum bankans við fjölmiðla, aðdraganda húsleitar, álagningu sektar og ekki síst í harðorðum athugasemdum umboðsmanns Alþingis, að starfsmenn bankans tóku fjölmargar ákvarðanir um aðgerðir gegn Samherja í vondri trú og gegn betri vitund. Slík háttsemi varðar við refsilög og felur í sér ásetningsbrot um rangar sakargiftir. Almennir borgarar eru látnir sæta refsingu fyrir slíka framkomu. Rétt er að háttsettir starfsmenn Seðlabanka Íslands sitji við sama borð og aðrir í þessum efnum og svari til saka eins og aðrir borgarar,“ segir í tilkynningu Þorsteins.

Lögðu inn kæru til lögreglu

Í kjölfarið hefur stjórn Samherja og Þorsteinn Már lagt inn beina kæru til lögreglu á hendur Má Guðmundssyni, Arnóri Sighvatssyni, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, Rannveigu Júníusdóttur og Sigríði Logadóttur. Þorsteinn ítrekar í lok tilkynningarinnar að þetta sé ekki sú leið sem Samherji vildi fara og hefur ítrekað reynt að forðast en nú sé þeim nóg boðið og kæran óhjákvæmileg.


UMMÆLI

Sambíó