Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Samkeppnin Ungskáld er hafin – Ritlistarkeppni fyrir 16-25 ára

Samkeppnin Ungskáld er hafin – Ritlistarkeppni fyrir 16-25 ára

Í framhaldi af ritlistasmiðju sem haldin var síðustu helgi er nú efnt til ritlistakeppni sem er opin öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Það er alls ekkert skilyrði að hafa tekið þátt í ritlistasmiðjunni þótt vonir standi til að þátttaka þar komi að góðum notum. Um 30 ungmenni á aldrinum 16-25 ára sóttu ritlistasmiðjuna Ungskáld í VMA en mjög góður rómur var gerður að leiðsögn Guðrúnar Evu Mínervudóttur og Snæbjörns Ragnarssonar, Bibba í Skálmöld.

Peningarverðlaun fyrir efstu þrjú sætin 

Í ritlistakeppninni verða veitt peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að sjálfsögðu að vera á íslensku. Skilafrestur á innsendum verkum er til og með 16. nóvember sem er dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Þátttakendur senda skrif sín á netfangið ungskald@akureyri.is.

Tilkynnt verður um sigurvegara í keppninni við sérstaka athöfn á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 6. desember nk.

Markmiðið með verkefninu er að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára því að kostnaðarlausu. Verkefnið Ungskáld hefur verið við lýði á Akureyri í nokkur ár og er það eina sinnar tegundar á landinu. Að verkefninu standa Akureyrarstofa, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og Amtbókasafnið.

Margt um manninn í ritlistarsmiðju Ungskálds.

UMMÆLI

Sambíó