Samkomulag um uppbyggingu á félagssvæði KAFrá vinstri: Sigríður Jóhannsdóttir gjaldkeri KA, Ingvar Már Gíslason formaður KA, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Eva Hrund Einarsdóttir formaður frístundaráðs Akureyrarbæjar

Samkomulag um uppbyggingu á félagssvæði KA

Akureyrarbær og Knattspyrnufélag Akureyrar hafa gert með sér samkomulag vegna endurnýjunar og uppbyggingar gervigrasvalla og áhorfendastúku á félagssvæði KA við Dalsbraut.

Samkomulagið er gert á grundvelli viljayfirlýsingar sem var undirrituð í janúar síðastliðnum og heimilaði KA að vinna drög að deiliskipulagi sem hefur nú öðlast gildi. Samkomulagið tekur til fyrri áfanga uppbyggingar samkvæmt skipulaginu, það er gervigrasvallar og 1.000 sæta áhorfendastúku sem og jarðvegsvinnu vegna félagsaðstöðu. Auk þess verður yfirlag gervigrasvallar frá 2013 endurnýjað og hið gamla endurnýtt á suðvesturhluta svæðisins. Akureyrarvöllur fær annað hlutverk.

Markmið samkomulagsins er annars vegar að efla og bæta íþróttaaðstöðu KA í samræmi við skýrslu starfshóps um nýframkvæmdir íþróttamannvirkja og hins vegar að færa knattspyrnutengda starfsemi af Akureyrarvelli svo Akureyrarbær geti hafið vinnu við að endurskipuleggja svæðið undir aðra starfsemi. Akureyrarvöllur er, samkvæmt gildandi aðalskipulagi, skilgreindur sem þróunarsvæði og er stefnt að uppbyggingu þar í náinni framtíð. Svæðið býður upp á spennandi möguleika og er einnig áætlað að uppbygging þar skili Akureyrarbæ umtalsverðum tekjum í formi gatnagerðarog byggingarréttargjalda.

Völlurinn verður notaður til knattspyrnuiðkunar út sumarið 2022. Framkvæmdir hefjast næsta vor Akureyrarbær mun samkvæmt samkomulaginu kosta og sjá um framkvæmdir. Áætluð framlög bæjarins nema í heild 820 milljónum króna og skiptast þau á næstu þrjú ár.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við endurnýjun og endurnýtingu gervigrasvalla hefjist vorið 2022. Framkvæmdir við nýjan aðalgervigrasvöll eiga að hefjast í ársbyrjun 2023 og er stefnt að því að hann verði tilbúinn fyrir sumarið. Áætlað er að hefja byggingu stúku í byrjun árs 2024 og er stefnt að því að ljúka verkinu fyrir árslok.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Ingvar Már Gíslason, formaður KA, undirrituðu samkomulagið í dag og hefur það þar með tekið gildi.

UMMÆLI