beint flug til Færeyja

Samstöðugöngu vegna kjarasamninga KÍ frestað fram á þriðjudag 12.nóvember

Samstöðugöngu vegna kjarasamninga KÍ frestað fram á þriðjudag 12.nóvember

Á morgun, þriðjudaginn 12. nóvember munu félagsmenn Kennarasambands Íslands á Akureyri og nágrenni safnast saman og fara í samstöðugöngu. Gangan átti upprunalega að vera í síðustu viku en henni var frestað.

Þetta er gert vegna kjaradeilu KÍ við viðsemjendur. Gangan hefst við Rósenborg kl. 16:45 og endar á Ráðhústorgi. Þar munu taka til máls Daníel Freyr Jónsson kennari í VMA og Hólmfríður Þorgeirsdóttir kennari í Lundarskóla á Akureyri auk annarra.

„Með þessari göngu viljum við hvetja til þess að samningar náist sem fyrst og með þátttöku sýnum við það í verki. Öll sem telja sig málið varða og vilja styðja kennara og þá kröfu KÍ að fjárfesta í kennurum  eru hjartanlega velkomin með í gönguna,“ segir í tilkynningu.

VG

UMMÆLI