Sendur til skólastjórans eftir að hann skrifaði ritgerð um hvað Akureyringar væri miklir lúserar

Sendur til skólastjórans eftir að hann skrifaði ritgerð um hvað Akureyringar væri miklir lúserar

Mývetningurinn og rokkarinn Stefán Jakobsson, eða Stebbi Jak, söngvari hljómsveitarinnar Dimmu var gestur í Síðdegisþætti Loga Bergmanns og Sigga Gunnars á K100 í vikunni. Þar sagði hann þeim frá því þegar hann var nemandi í Verkmenntaskólanum á Akureyri og var sendur til skólastjórans vegna ritgerðar sem hann skrifaði í Félagsfræði áfanga.

„En ef við ætlum að tala um Akureyri þá skrifaði ég ritgerð í félagsfræði í Verkmennaskólanum um það hvað Akureyringar væru miklir „lúserar“,“ sagði Stebbi.

„Ég fékk tvo í mínus frá kennaranum og var sendur til skólastjórans. þetta var ekki í fyrsta skiptið og ekki eina skiptið. En rökin mín voru meðal annars þessi að í stjórnum nemendafélaganna í menntaskólanum og Verkmenntaskólanum sem var með stærri framhaldsskólum á Íslandi, var enginn Akureyringur. Það var enginn Akureyringur formaður eins einasta félags í hvorugum skóla og sama átti við um mjög margar nefndir í menningarmálum. Og til að toppa þetta allt saman var bæjarstjórinn Dalvíkingur.“

Stebbi segir þó að margt hafi breyst á Akureyri frá menntaskólaárum hans. Hann tekur þátt í undankeppni Eurovision í ár með hljómsveitinni Dimmu. Dimma stígur á svið í undankeppni Söngvakeppninnar annað kvöld með lag sitt Almyrkva.

Hlustaðu á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Sambíó

UMMÆLI